Sem filter uppáhelling hefur kaffið mjúka kremaða áferð og nokkuð mikla fyllingu. Bragðtónar sem minna á súkkulaði og steinávöxt með löngu eftirbragði af kakói, hnetum og hrásykri. Sem espresso er kaffið með bjartari ávöxt, sírópskennda áferð og kakó, karamellu og hnetu í eftirbragði.

Uppruni: Minas Gerais í Brasilíu
Fylki: Mogiana, 100-1400m
Vinnsla: Hunangsvinnsla
Afbrigði: Gulur Bourbon

Í öllum kaffiræktunarlöndum eru áskoranir sem þarf að takast á við og finna lausnir á, til að mynda veðurfar og landslag. Til að vera samkeppnishæfir hafa margir kaffibændur í Brasilíu snúið til nýsköpunar og aukinnar tækni – og vélvæðingar. Kaffiberin fara í gegnum þurra-, hunangs- eða þvegna-vinnsluaðferð. Eftir það eru vélar notaðar til þess að flokka baunirnar eftir stærð og þéttleika. Þeir hafa jafnvel vélar til þess að fjarlægja gallaðar og skemmdar baunir með litagreiningu og útfjólublátt ljós til þess að fjarlægja óþroskaðar baunir. Þrátt fyrir alla þá tækni sem Brasilía hefur innleitt, kemur það ekki í staðinn fyrir mannauðinn sem býr að baki.

Kaffi frá sama landi
0