Reykjavík Roasters áskilur sér rétt til að afgreiða ekki pantanir, t.d. ef vara er vitlaust verðmerkt eða uppseld, og til að breyta verðum og vöruframboði. Viðskiptavinur fær þá endurgreitt eða getur valið sér aðra vöru.

Upplýsingar um seljanda

Seljandi er Kaffismiðja Íslands ehf, kt: 500708-0690 Brautarholti 2, 105 Reykjavík. (sjá ítalega skráningu hjá RSK  hér).   Við ristum og seljum kaffi, uppáhellibúnað og annað sem kaffiunnandin gæti þurft. Við veitum ráðgjöf um allt sem viðkemur kaffi, ristun og fleira sem snertir kaffiiðnaðinn.

Loforð um ferskleika

Kaffi sem keypt er í vefverslun er 4-14 daga gamalt. Gott viðmið er að njóta kaffis innan fjögurra vikna frá ristunardegi.

Skilaréttur

Viðskiptavinir okkar hafa 7 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að þeir hafi ekki notað vöruna, hún sé ekki sérsniðin að þörfum kaupanda, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum og að greiðslukvittun fylgi með. Niðurtalning hefst þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Varan er endurgreidd að fullu innan 14 daga eftir að henni er skilað ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt. Endursending vöru er á ábyrgð og kostnað viðskiptavinar, nema hann hafi fengið ranga eða skemmda vöru afhenta.

Verð

Allt  verð í vefversluninni er  í íslenskum krónum  og er virðisaukaskattur innifalinn. Verð er  birt með fyrirvara um innsláttarvillur. Verð í vefversluninni getur breyst án fyrirvara t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða rangrar skráningar samanber ákvæði þess efnis hér að framan.

Greiðslumöguleikar

Seljandi notar örugga greiðslugátt frá Valitor. Hægt er að greiða með kreditkortum frá öllum helstu kortafyrirtækjum. Þegar greiðslan hefur borist fær viðskiptavinur tölvupóst með staðfestingu á pöntun.

Eignarréttarfyrirvari

Seldar vörur eru eign seljanda þar til kaupandi hefur greitt kaupverðið að fullu.

Trúnaður

Seljandi heitir viðskiptavinum fullum trúnaði um allar upplýsingar sem þeir gefa upp í tengslum við viðskiptin.

Lagaákvæði

Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 sem og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003, eftir því sem við getur átt . Niðurtalning á öllum frestum sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 hefst þegar móttaka vöru á sér stað.

Höfundarréttur

Allt efni á www.reykjavikroasters.is texti, grafík, lógó og myndir, er eign Kaffismiðju Íslands ehf.

Varnarþing

Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Skilmálar þessir gilda frá 1.4.2014. Ef þú þarft nánari upplýsingar, sendu okkur þá fyrirspurn á mail@reykjavikroasters.is og við svörum þér eins fljótt og auðið er.

Sendingadagar

Við sendum allt kaffi úr vefversluninni  tveimur virkum dögum eftir pöntun. 

Ef þú vilt fá kaffið malað, þá þurfum við að vita frá þér er hvernig þú hellir upp á (fyllist út í liðnum „Skýring með pöntun“) svo að við getum stillt kvörnina okkar eftir því.

Sendingarkosnaður

Sendingakosnaður fellur niður ef pöntun hljóðar upp á meira en 8.000kr. Annars er sendingakosnaður 990 kr. innanlands, óháð póstnúmeri.

Sendingar utanlands

Sendingar utanlands eru án vsk. Sendingarkostnaður bætist við verð vöru áður en greiðsla fer fram. Vörur eru sendar með flugpósti. Sendingarkostnaður utanlands er eftirfarandi:

Norðurlönd: 3800 kr.
Evrópa (ekki SSR): 3800 kr.
Norður  Ameríka: 3800 kr.
Mið- og Suður Ameríka: 4800 kr.
Afríka  og Mið Austurlönd: 4800 kr.
Asía og SSR: 4800 kr.
Eyjaálfa: 5200 kr.

0