Tilvalið námskeið fyrir þá sem vilja öðlast betri færni í espressogerð heimavið en kennt verður á sambærilega vél og við notum á kaffihúsunum okkar. Á þessu námskeiði förum við yfir allt það sem skiptir máli að útbúa góðan espresso ásamt því að flóa og freyða mjólk svo úr verði silkimjúkur kaffibolli.
Tilvalinn fjöldi á námskeiðinu eru tveir til þrír þátttakendur og námskeiðið er um ein og hálf til tvær klukkustundir.
Verð á hvern þátttakenda er 15.900kr.
Hægt er að senda fyrirspurnir á formi hér að neðan sem svarað verður um hæl.
Tilvalið námskeið fyrir þá sem vilja öðlast betri færni í morgunbollanum, hvort sem það er sjálvirk uppáhelling eða handbrugg. Farið verður yfir algengustu uppáhelligræjur á borð við Kalita, Chemex ásamt Aeropress og pressukönnu.
Það er kúnst að finna góð hlutföll og heppilega mölun innan ákveðins bruggtíma. Sitt sýnist hverjum í þeim efnum og hér fá þátttakendur tækifæri að finna sína aðferð og brugga sinn besta bolla.
Tilvalinn fjöldi á námskeiðinu eru fjórir til fimm og tekur einn til einn og hálfan klukkutíma.
Verð á hvern þátttakenda er 9.900 kr.
Hægt er að senda fyrirspurn á forminu hér að neðan sem verður svarað um hæl.