Finca El Paraiso

3.300 kr.

Margslungið og ávaxtaríkt kaffi með bjartri sýru. Blómlegir tónar í bland við rauð epli, kirsuber, rauð ber og svart te. Bragðmikið meðalfyllt kaffi með löngu eftirbragði.

Land: Kólumbía
Búgarður: Finca El Paraiso
Hérað: Narino
Vinnsla: Anaerobic Natural
Afbrigði: Caturra
Hæð yfir sjávarmáli: 1900m

100 in stock

Category:

Lýsing

Búgarðurinn hans Jose Ignacio Gomez er staðsettur í Verada el Naranjal nálægt borginni Buesaco í Narino héraði. Caturra afbrigði Paraiso búgarðsins vex í 1900 metra hæð yfir sjávarmáli þar sem árleg úrkoma er um 1800mm. Jose ólst upp í mikilli kaffifjölskyldu og hefur öðlast mikla reynslu og þekkingu á góðu kaffi. Kaffið vex á 6 hektara landi ásamt appelsínum, sítrónum og avókadó. Á uppskerutíma kemur fjölskylda Jose saman og týnir þroskuð ber og berin eru unnin í þeirra eigin vinnslustöð í búgarðinum.

Viðbótarupplýsingar

Weight 250 g
Veldu stærð

1kg, 250g

Viltu kaffið í baunum eða malað

Heilar baunir, Malað kaffi